Título: Jafnréttiskennitalan
Autores: Elín Blöndal
Fecha: 2010-04-13
Publicador: Bifröst: Journal of Social Science
Fuente:
Tipo: Peer-reviewed Article
Tema: mælikvarðar á jafnrétti; kynjajafnrétti; Jafnréttiskennitalan; konur; fjölbreytni; arðsemi; stjórnir; stjórnendur; equality indicators; gender equality; gender equality index; women; diversity; performance; board; top management
Descripción: Í greininni er fjallað um Jafnréttiskennitöluna, rannsóknar- og þróunarverkefni sem unnið var á vegum Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála við Háskólann á Bifröst. Gerð er grein fyrir þremur meginþáttum verkefnisins: Birtingu upplýsinga um kynjajafnrétti í fyrirtækjum, mótun mælikvarða á kynjajafnrétti og vali slíkra mælikvarða inn í Jafnréttiskennitölu. Upplýsingar um stöðu kynjajafnréttis í stærstu fyrirtækjunum á Íslandi voru birtar þrisvar á meðan á verkefninu stóð og er niðurstöð­unum lýst í greininni. Beiting mælikvarða á kynjajafnrétti í fyrirtækjum er aðferð til að ná fram upplýsingum um stöðu mála en er einnig ætlað að stuðla að kynjajafnrétti með virkum hætti. Mælikvarðar á kynjajafnrétti voru flokkaðir annars vegar sem mælikvarðar á stefnu eða ráðstafanir fyrirtækja til að vinna að kynjajafnrétti og hins vegar sem mælikvarðar á árangur sem fyrirtækin hafa náð. Í verkefninu um Jafnréttis­kennitöluna var farin sú leið að afmarka upplýsingaöflun svo til eingöngu við mæli­kvarða á árangur, þ.e. við hlutfall kynjanna í stjórnum fyrirtækja meðal æðstu stjórn­enda og yfirmanna. Í greininni er jafnframt lýst forsendum á vali mælikvarða inn í samsetta kennitölu sem endurpegli hlutfallsleg áhrif kvenna innan fyrirtækja. This article discusses the development of the Corporate Gender Equality Index by the Research Centre for Labour Law and Equal Rights at Bifröst University in Iceland. The article describes three of the project’s main goals: publishing infor­mation on gender equality in Iceland’s largest companies, developing indicators and measures of gender equality, and selecting which ones to use in the construction of the index. During the course of the project, three reports on gender equality were issued, and their conclusions are described in the article. Indicators of gender equality in organizations serve both as a way of collecting information about gender equality at the working place, and as a tool in supporting gender equality. Indicators of gender equality can be classified either as having to do with the policies or actions that com­panies take in gender matters, or as reflecting actual outcomes in a given corporation. The Corporate Gender Equality Index builds primarily on the second group of indi­cators – those that reflect actual outcomes, such as the proportion of men and women on corporate boards and among company executives. The paper also describes the selection of indicators for the Equality Index, which reflects the proportional authority of women within companies.
Idioma: is